Sleppa leiðarkerfi.

center For Icelandic Art

Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar styrkir íslenska myndlistarmenn til starfa og sýningahalds erlendis. Listamenn geta sótt um stærri styrki, að hámarki kr. 400 þúsund, fyrir umfangsmikil verkefni áætluð með lengri fyrirvara eða smærri styrki, að hámarki kr. 60 þúsund, vegna umfangsminni verkefna með skemmri fyrirvara.


 

Stærri styrkir

  1. Vinnustofudvöl
    Styrkur til ferðalaga og/eða til dvalar á vinnustofu.

  2. Verkefni
    Styrkur til verkefna sem fram fara erlendis.
    Gerð og undirbúningur verkefna/verka sem fram fara erlendis.

  3. Útgáfa
    Styrkur til útgáfu á efni til kynningar á listamanni, hópi listamanna eða galleríi án gróðasjónarmiða, á alþjóðlegum vettvangi.
    Styrkurinn er veittur til útgáfu á hvers kyns sýningarskrám, prentuðum, DVD, CD- ROM, en ekki til vefsíðugerðar.

Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar hefur í ár úthlutað samtals tvær milljónir króna í “stærri styrkjum” til íslenskra listamanna fyrir verkefni í útlöndum. Markmið stofnunarinnar er að kynna íslenskt listalíf erlendis og stuðla að velgengni íslenskra listamanna með því að aðstoða þá við að framkvæma verkefni á erlendum vettvangi.

Listamennirnir sem hlotið hafa styrkir að þessu sinni eru Hrafnhildur Arnardóttir og Hrafnkell Sigurðsson fyrir þátttöku þeirra í Liverpool tvíæringnum; Kling og Bang gallerí, fyrir þátttöku í sýningunni "No Soul for Sale" í Túrbínusalnum í Tate Modern í London, Unnar Örn Jónasson Auðarson, fyrir þátttöku hans í Búkarest tvíæringnum, Jonatan Habib Enquist, fyrir sýningu hans "Iceland - The Nordic 3rd World Country" í Färgfabrikken í Östersund í Svíþjóð; Harpa Árnadóttir fyrir sýningu hennar í Göteborgs Konstförening og útgáfu bókar, Sara Björnssdóttir fyrir vinnustofudvöl og sýnigunni í Kulturpalast Wedding í Berlin og Ásmundur Ásmundsson fyrir útgáfu bókarinnar "Ræður 1999-2009", sem er gefin út af forlaginu Útúrdúr.


 


 

Styrkir til verkefna með skemmri fyrirvara

 

Hluti styrkjafjárins er ætlaður til smærri verkefna.
Þeir styrkir eru að hámarki kr. 60 þúsund og eru ætlaðir til verkefna með skemmri fyrirvara og er úthlutað utan auglýstra dagsetninga.

Sjá kaflann “umsækjendur og umsóknareyðublað.

 

 

ATH: Frá og með 1. júni 2010 verður einungis hægt að senda inn rafrænar umsóknir! Umsóknir sendist á info@cia.is með "Styrkir til verkefna með skemmri fyrirvara" sem viðfangsefni.

 

Umsóknir vegna verkefna með skemmri fyrirvara skulu berast a.m.k. 30 dögum áður en fyrirhugað verkefni hefst.

 

Ef fleiri en einn listamaður sækir um vegna sama verkefnis, er fagráðinu heimilt að fjalla um umsóknirnar sem eina.